Skorað á framsókn

Ef ég man rétt var planið að framsókn myndi makka að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.  M.a. var talað um aðgerðir í efnahagsmálum.

Nú þegar ríkisstjórnin hefur slegið tillögur framsóknarmanna út af borðinu hljóta margir að velta fyrir sér hvað á eiginlega að gera í þeim efnum?

Ég set fram þrjár spurningar sem ég er fullviss um að margir eru áhugasamir um að fá skýr svör við:

1.  Hvað ætla stjórnvöld að gera vegna efnahgasvanda heimilanna, einkum og sér í lagi með tilliti til húsnæðislána?

2.  Hvenær munu þær aðgerðir koma til framkvæmda?

3.  Hvernig verða þær aðgerðir útfærðar?

Geti ríkisstjórnin ekki svarað þessu með fullnægjandi hætti skora ég á framsókn að draga stuðning sinn til baka.


mbl.is Iðrast stuðnings við stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef framsóknarflokkurinn hefdi ekki stutt thessa ríkisstjórn er ég viss um ad hann hefdi thurrkast út.  Thetta er EINA leidin til thess ad halda einhverju fylgi.  Allir their sem í framsóknarflokknum eru og vilja vinstri ríkisstjórn munu yfirgefa flokkinn strax ef flokkurinn haettir ad stydja ríkisstjórnina....svo einfalt er thad.

ssssssss (IP-tala skráð) 15.3.2009 kl. 12:38

2 Smámynd: Þórður Björn Sigurðsson

Ég hef ekkert á móti vinstri stjórn.  En ég þoli illa aðgerðaleysi þegar mikið liggur við.

Ég minni á að enn er verið að selja heimili ofan af fólki á sama tíma og þúsundir íbúða standa tómar.

Hvers konar vinstri stjórn skrifar upp á það?

Þórður Björn Sigurðsson, 15.3.2009 kl. 15:12

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Þórður.

Mikið sammála þér.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 16.3.2009 kl. 01:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband