8.2.2012 | 23:27
Ný stjórnmálasamtök verða til - nánari upplýsingar
Á heimasíðu Hreyfingarinnar má lesa eftirfarandi:
Fulltrúar Hreyfingarinnar hafa að undanförnu sótt fundi þar sem rætt hefur verið um myndun nýs samstarfsvettvangs um framboð til næstu Alþingiskosninga til að hrinda brýnum hagsmunamálum almennings í framkvæmd.
Viðræðurnar hafa leitt til þess að klukkan 12 þann 12. febrúar 2012 er fyrirhugað að hefja stofnferli nýrra stjórnmálasamtaka. Fundurinn, sem er öllum opinn, fer fram í Grasrótarmiðstöðinni, Brautarholti 4, 105 Reykjavík.
Fyrir fundinum liggja drög að lögum hins nýja félags og drög að kjarnastefnu. Fundargögnin eru aðgengileg á netinu:
Drög að lögum
https://docs.google.com/document/d/1JPSBP-pB-KBpwP3zxI0K1ZDmpNtFpVo_baRwpLwbI-8/edit?ndplr=1
Drög að kjarnastefnu
https://docs.google.com/document/d/1mADcrTqMByI5dstKCStdZLieQLnO672JgtjnOAZ7gFQ/edit?hl=en_US
Meginverkefni fundarins verður að móta lokadrög að ofangreindum skjölum sem lögð verði fyrir framhaldsstofnfund sem áformað er að halda á jafndægrum að vori, í kringum 20. mars. Einnig að velja bráðabirgðaframkvæmdaráð sem taki við keflinu fram að síðari stofnfundi. Opnað verður fyrir stofnfélagatal og kallað eftir tillögum að nöfnum á hið nýja félag.
Allir áhugasamir um framgang þessa máls eru hvattir til að mæta á fundinn þann 12. febrúar næstkomandi.
Hægt er að senda ábendingar og breytingartillögur á: hreyfingin@hreyfingin.is
Fésbókarsíða nýrra stórnmálasamtaka
https://www.facebook.com/pages/N%C3%BD-stj%C3%B3rnm%C3%A1lasamt%C3%B6k/342658765765560?ref=ts
Stutt í stofnun Breiðfylkingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
29.8.2011 | 13:06
Náttúruauðlindir í þjóðareigu
Fregnir af samningi um kaup Kínverjans Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum hafa vakið marga til umhugsunar. Jörðin á vatnsréttindi að Jökulsá á Fjöllum en einnig hefur komið upp að þar mætti mögulega bora niður á jarðvarma.
Spurningarnar sem svífa yfir vötnum þessa daganna lúta meðal annars að eignarhaldi á auðlindum. Viljum við að einkaaðilar eigi auðlindir og nýti þær? Og skiptir þjóðerni eigandans þá einhverju máli í því sambandi?
Stefna Hreyfingarinnar í þessum málaflokki er hvorki flókin né sett fram í löngu máli. Hún er engu að síður skýr:
,,Allar náttúruauðlindir sem tilheyra íslenskri lögsögu, í lofti, láði og legi, verði í þjóðareigu. Óheimilt verði að framleigja auðlindir nema tímabundið og þá aðeins með viðurkenndum gagnsæjum aðferðum þar sem fyllsta jafnræðis og arðs verði gætt."
Frumvarp Hreyfingarinnar um stjórn fiskveiða, Þriðja leiðin, er svo til merkis um hvernig útfæra megi þessa stefnu.
Í þessari umræðu er forvitnilegt að horfa til þess sem segir í frumvarpi stjórnlagaráðs um auðlindir:
,,Auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, eru sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar. Enginn getur fengið auðlindirnar, eða réttindi tengd þeim, til eignar eða varanlegra afnota og aldrei má selja þær eða veðsetja." (feitletrun mín)
Óhætt er að fullyrða að Hreyfingin vilji ganga lengra en stjórnlagaráð þar sem stjórnlagaráð dregur línuna við þær auðlindir sem ekki eru í einkaeigu á meðan Hreyfingin vill þær allar í þjóðareign.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
25.8.2011 | 08:22
Raundæmi vegna kvörtunar HH
Þó nokkur umræða hefur skapast um kvörtun Hagsmunasamtaka heimilanna til umboðsmanns Alþingis varðandi innheimtu verðtryggðra lána. Í lögfræðiáliti sem samtökin hafa lagt til grundvallar kemur fram að svo virðist sem reglugerð sú sem Seðlabankinn hefur gefið út og lánastofnanir styðjast við þegar kemur að innheimtu verðtryggðra lána skorti lagastoð.
Í gildandi lögum um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 segir í 13. gr. :
Ákvæði þessa kafla gilda um skuldbindingar sem varða sparifé og lánsfé í íslenskum krónum þar sem skuldari lofar að greiða peninga og þar sem umsamið eða áskilið er að greiðslurnar skuli verðtryggðar. Með verðtryggingu er í þessum kafla átt við breytingu í hlutfalli við innlenda verðvísitölu."
Í reglum Seðlabankans nr. 492/2001 segir:
III. Verðtryggð útlán.
4. gr.
Verðtrygging láns með ákvæði um að höfuðstóll þess miðist við vísitölu neysluverðs er því aðeins heimil að lánið sé til fimm ára hið minnsta. Höfuðstóll láns breytist í hlutfalli við breytingar á vísitölu neysluverðs frá grunnvísitölu til fyrsta gjalddaga og síðan í hlutfalli við breytingar á vísitölunni milli gjalddaga. Skal höfuðstóll láns breytast á hverjum gjalddaga, áður en vextir og afborgun eru reiknuð út."
Í lögfræðiálitinu er rakið hvað felst í hugtakinu greiðslur, en skv. álitinu eru greiðslur afborganir af höfuðstól og vextir. Það er niðurstaða lögfræðiálitsins að heimild sé fyrir því í lögum að verðbæta greiðslur en lagaheimild skorti fyrir verðbótafærslu höfuðstólsins eins og reglur Seðlabankans segja til um.
Áhrifin af því að verðbæta höfuðstólinn, en ekki bara afborganir og vexti, eru gríðarleg þegar kemur að heildarendurgreiðslu lánsins vegna þess að verðbætur á höfuðstól koma ekki til greiðslu jafnóðum á hverjum gjalddaga, heldur bætast við höfuðstólinn og taka á sig verðbætur og vexti á hverjum gjalddaga. Þannig verða til margfeldisáhrif og höfuðstóll skuldarinnar blæs út.
Ég tók til skoðunar greiðsluseðla á verðtryggðu jafngreiðsluláni sem tekið var 6. nóvember 2003. Lánið ber 5,6% vexti á ári og stóð VNV í 229 við lántöku. Lánið var ekki ýkja hátt, kr. 1.400.000,- En það er kannski vegna þess að tölurnar eru ekki svo háar að þægilegt er að styðjast við þær til útskýringar á því sem raunverulega gerist (VNV hækkaði úr 229 í 229,3 milli gjalddaga):
1. gjalddagi |
|
|
Eftirstöðvar á gjalddaga | 1.400.000 |
|
Verðbætur á eftirstöðvar | 1.834 |
|
Afborgun af höfuðstól |
| 1.503 |
Verðbætur á afborgun |
| 2 |
Vextir (í 25 daga) |
| 5.444 |
Verðbætur á vexti |
| 7 |
Seðilgjald |
| 250 |
Til greiðslu |
| 7.206 |
|
|
|
Eftirstöðvar eftir greiðslu | 1.400.328 |
|
Í fyrsta lagi reiknar lánveitandi út verðbætur á höfuðstól. Sú aðferðafræði sem notuð er byggir á því að mæla breytingar á vísitölu neysluverðs á milli gjalddaga og margfalda svo þá hlutfallslegu breytingu með höfuðstól. Verðbætur á höfuðstól koma ekki til greiðlsu á gjalddaga heldur færast á höfuðstólinn og mynda þannig nýjan og breiðari stofn til útreikninga verðbóta, afborgana og vaxta á næsta gjalddaga og svo koll af kolli.[1] Þessi aðgerð á sér ekki lagastoð samkvæmt lögfræðiálitinu.
Því næst er reiknuð út afborgun af höfuðstól og verðbætur á afborgun. Þar sem um er að ræða jafngreiðslulán (annuitet) liggja nokkuð flóknir útreikningar að baki því hver afborgunin er. Skoða má þetta svar á vísindavefnum til að átta sig betur á muninum á jafngreiðsluláni og láni með jöfnum afborgunum af höfuðstól. Til að reikna út verðbætur á afborgun er ekki stuðst við hlutfallslega breytingar á vísitölu milli gjalddaga heldur frá lántökudegi og til gjalddaga. Þannig mætti segja að höfuðstóllin sé de facto verðbættur jafnóðum og hann er greiddur til baka.
Að lokum eru útreiknaðir vextir og verðbætur á vexti. Til að reikna út vexti er vaxtaprósentan margfölduð með höfuðstólnum og þannig fundnir út ársvextir í krónum. Þeirri upphæð er svo deilt í 360 til að finna út vexti per dag. Sú upphæð er margfölduð með dagafjöldanum sem um ræðir á hverjum gjalddaga. Til að reikna út verðbætur á vexti er stuðst við hlutfallsegar breytingar á vísitölu milli gjalddaga.
Ef verðbótafærsla höfuðstólsins færi ekki fram væru eftirstöðvar eftir greiðslu 1. gjalddaga kr. 1.398.407,- en ekki kr. 1.400.328,- Höfuðstóllinn myndi lækka milli gjalddaga en ekki hækka. Samkvæmt lögfræðiálitinu er það líka ætlun löggjafans:
Við staðgreiðslu verðbótanna færast verðbætur ekki á höfuðstólinn þar sem það er greiðslan sem er verðbætt og hún er greidd. Eftir stendur höfuðstóll að frádreginni afborgun sem felur í sér jafngreiðslu á höfuðstólnum auk greiðslu verðbóta á hverja afborgun og vexti og verðbætur á vexti. Það er sú leið sem hér er haldið fram að löggjafinn gerir ráð fyrir að farin sé með greiðslu verðbóta á greiðslu láns bæði á afborganir og vexti."
Næsti gjalddagi lítur svona út (VNV hækkaði úr 229,3 í 230 milli gjalddaga):
2. gjalddagi |
|
|
Eftirstöðvar á gjalddaga | 1.400.328 |
|
Verðbætur á eftirstöðvar | 4.275 |
|
Afborgun af höfuðstól |
| 1.511 |
Verðbætur á afborgun |
| 6 |
Vextir (í 31 dag) |
| 6.535 |
Verðbætur á vexti |
| 20 |
Seðilgjald |
| 250 |
Til greiðslu |
| 8.322 |
|
|
|
Eftirstöðvar eftir greiðslu | 1.403.086 |
|
Ofangreint dæmi sýnir glögglega virkni margfeldisáhrifanna þegar verðbætur hlaðast mánaðarlega utan á höfuðstól. Þannig verður í raun til nýtt lán í hverjum mánuði eins og rakið er í lögfræðiálitinu sem ég læt fylgja með færslunni.
[1] Eftirstöðvar á gjalddaga + verðbætur á höfuðstól - afborgun af höfuðstól eru kr. 1.400.331. Eftirstöðvar eftir greiðslu eru kr. 1.400.328 með verbótum. Þarna munar 3 krónum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.8.2011 | 15:04
Snjóboltaáhrifin
Valgarður Guðjónsson fullyrðir í nýjustu bloggfærslu sinni að málflutningur Hagsmunasamtaka heimilanna standist ekki skoðun þó ekki sé gott að segja í hverju feillinn liggi í útreikningi samtakanna, svo ég styðjist við hans orð.
Ég setti því inn svohljóðandi athugasemd:
Málflutningur HH byggir á lögfræðiáliti, ekki útreikningum.
í því segir að lagastoð skorti fyrir því að verðbæta höfuðstól/eftirstöðvar lána. Hinsvegar sé heimilt að verðbæta greiðslur. Í því sambandi eru greiðslur skilgreindar sem afborgun + vextir.
Eins og verðtryggð lán eru innheimt verðbætir lánveitandinn fyrst eftirstöðvarnar/höfuðstólinn, þá afborgunina og loks vextina.
Samkæmt lögfræðiálitinu má ekki verðbæta eftirstöðvarnar/höfuðstólinn. Bara afborgunina og vextina. (Afborgunin er þó hluti af höfuðstólnum þannig að sá hluti höfuðstólsins er de facto verðbættur á hverjum gjalddaga fyrir sig sem hluti af greiðslunni. Og það má skv. lögfræðiálitinu.)
Hluti af þessum verðbótum sem reiknaðar eru á höfuðstól, afborgun og vexti kemur aftur á móti ekki til greiðslu á hverjum gjalddaga heldur færist á eftirstöðvar lánsins fyrir næsta gjalddaga. Þannig verða til viðbótarlán og margfeldisáhrif eins og snjólbolti á fullri ferð sem sífellt hleður utan á sig.
Þann 17. júní 2011 gerði ég tilraun til að útskýra þetta í færslu hér á þessu bloggi. Færslan er hér: http://tbs.blog.is/blog/tbs/entry/1174485/
Lögfræðiálitið er tengt við færsluna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
16.8.2011 | 19:57
Verðtryggingin ólögleg svikamylla?
Þann 17. júní síðastliðinn birti ég færslu undir nafninu ,,Verðryggingin ólögleg svikamylla?" Færslan byggir á greiðsluseðli fyrir gjalddaga á verðtryggðu láni. Í færslunni er útskýrt hvernig lánveitandi þríverðbætir lánið á hverjum gjalddaga. Í fyrsta lagi er höfuðstóllin verðbættur, í annan stað er greiðsla af höfuðstól verðbætt og í þriðja lagi eru vextir verðbættir. Í framhaldi er gerður samanburður á heildarendurgreiðslu verðtryggðs láns annars vegar og óverðtryggðs láns hins vegar. Í restina er þeirri spurningu velt upp hvort sú aðferðafræði sem fjármálafyrirtæki viðhafi við innheimtu verðtryggðra lána standist lög.
Færslan er hér: http://tbs.blog.is/blog/tbs/entry/1174485/
Umboðsmaður kannar útreikninga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.8.2011 | 22:01
Massive Attack og óeirðirnar í Englandi
Á facebook síðu hljómsveitarinnar Massive Attack hafa skapast miklar umræður í kjölfar þeirra orða sem látin voru falla í nafni sveitarinnar um óeirðirnar í Englandi. Færslan er eftirfarandi:
,,In context with the complicit support of the government, the banks looted the nation's wealth while destroying countless small businesses and brought the whole economy to its knees in a covert, clean manner, rather like organised crime.
Our reaction was to march and wave banners and then bail them out. These kids would have to riot and steal every night for a year to run up a bill equivalent to the value of non-paid tax big business has 'avoided' out of the economy this year alone.
They may not articulate their grievances like the politicians that condemn them but this is absolutely political. As for the 'mindless violence'... is there anything more mindless than the British taxpayer quietly paying back the debts of others while contributing bullets to conflicts that we have absolutely no understanding of?
It's mad, sad and scary when we have to take to the streets to defend our homes and businesses from angry thieving kids, but where are the police and what justice is ever done when the mob is dressed in pin stripe."
Flæmdu óþjóðalýð á brott | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.8.2011 | 23:04
Einkavæðingarstefna Árna Páls
Í Fréttablaðinu í dag er viðtal við Árna Pál Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra. Árni Páll vill fækka verkefnum ríkisins í hagræðingarskyni. Viðtalið er birt á vef Vísis. Í því segir m.a.:
,,Árni Páll segir hlutverk ríkisins að sinna ákveðnum kjarnaverkefnum. Öðrum málum eigi að útvista og koma á markað. Markmiðið sé að halda góðri þjónustu og helst að hún verði betri. Umfang rekstrarins þurfi að endurhugsa og það hvað hann kosti."
Vísir hefur svo orðrétt eftir Árna Páli:
Það eru margar leiðir til og við þurfum að velta öllu fyrir okkur. Þarf ríkið að vinna öll verkefni sem það sinnir í dag? Við þurfum að skoða hverju væri betur fyrir komið annars staðar. Í því felast einnig tækifæri. Við getum til að mynda stutt við atvinnulífið með því að fela því að sinna stoð- og tækniþjónustu. Ríkið er að sinna upplýsingatækni með eigin starfsfólki. Er það endilega besta leiðin? Við getum búið til fjölbreyttari þjónustumarkað með því að ríkið skilgreini þau verkefni sem það vinnur sjálft og kaupi síðan þá þjónustu sem þarf að auki.
Að skilgreina hlutverk og verkefni ríkisins í síbreytilegum heimi hlýtur að vera umræða sem aldrei tekur enda. Í því ljósi ber að taka vel í það frumkvæði sem ráðherra tekur með því að hefja þessa umræðu nú.
Hitt er annað mál hvort einkavæðing af því tagi sem ráðherra kallar eftir sé til þess fallin leysa fjárhagsvanda ríkisins. Af hverju að búa til einn milliliðinn í viðbót sem þarf að fá sitt? Og ef annar aðili getur í raun gert þetta fyrir minni pening en ríkið borgar í dag, af hverju getur ríkið þá ekki tekið upp ódýrari vinnubrögð sjálft?
Að hve miklu leyti er sá þjónustumarkaður sem Árni Páll vill búa til um upplýsingatækniþörf ríkisins sérhæfður? Hversu margir aðilar myndu á endanum keppa um hituna? Ekki þarf annað en að taka dæmi um mælaleigu Finns Ingólfssonar til að skynja að sporin hræða. Þá kemur Kögunarmálið fljótlega upp í hugann svo ekki sé minnst á einkavæðingu bankanna.
Kögun komst reyndar aftur í opinbera eigu í gegnum Landsbankann eftir að Jón Ásgeir og félagar voru búnir að taka snúning á félaginu. Í dag er Kögun hluti af Skýrr sem er í eigu Lífeyrissjóða og Landsbankans. Þetta er svo aftur forvitnilegt í því samhengi að Skýrr er skammstöfun fyrir gamla nafn hins opinbera fyrirtækis: Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar.
Þegar jafnaðarmenn ræða um mörkin á milli einkareksturs og ríkisreksturs má alveg rifja upp Stefnuskrá íslenzkra jafnaðarmanna frá 1915. Í henni segir:
,,Atvinnurekstur, sem samkvæmt eðli sínu, eða í reynd, er einokun, rekist af Landsjóði, sýslu- eða hreppafélögum."
Að fortíð skal hyggja er framtíð skal byggja. Sú kollsteypa samfélagsins sem öfgamarkaðshyggja ól af sér kann að vera vísbending um mikilvægi þeirra orða.
Bloggar | Breytt 7.8.2011 kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.7.2011 | 23:32
Getur einhver svarað þessu?
Í umræðum á facebook er því haldið fram að ERM II geti verið endastöð fyrir Ísland í gjaldmiðilsmálum. Þannig megi ná fram afnámi verðtryggingar.
Er þetta raunhæft?
Eða þurfum við að fara alla leið yfir í evruna, ef við ætlum á annað borð inn í ESB?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
15.7.2011 | 08:37
Skiptigengisleið
Hagsmunasamtök heimilanna standa nú fyrir undirskriftasöfnun og krefjast afnáms verðtryggingar og almennra leiðréttinga lána. Því til áréttingar birta samtökin umfjöllun um fjórar mismunandi leiðir að þessu marki. Ein af þeim leiðum sem um ræðir er kennd við skiptigengi. En hvað felur sú leið í sér? Eftirfarandi texti er fenginn að láni hjá HH og útskýrir vonandi málið.
Skiptigengisleið
Aðferðin felur í sér að fjárskuldbindingar í krónum eru færðar yfir í nýjan eða annan gjaldmiðil á mismunandi gengi í þeim tilgangi að endurreisa heimilin og hagkerfið. Það myndi leiða til aukinnar velferðar í gjörbreyttu efnahagsumhverfi og skapa tækifæri til að leiðrétta þá ósanngjörnu eignaupptöku sem átt hefur sér stað.
Skiptigengisleiðin hefur reynst vel til að byggja upp þjóðfélög að nýju eftir alvarleg áföll. Þrátt fyrir að ekki sé um algerlega sambærilegt ástand að ræða og þar sem þetta hefur verið gert, eins og í Þýskalandi, þá er það mat samtakanna að þessi leið sé jafn einföld og hún er snjöll. Það er því kannski engin tilviljun að Þjóðverjar hafi beitt henni í þrígang, nú síðast þegar þýsku ríkin sameinuðust.
Kostir skiptigengisleiðarinnar:
- Almenn skuldaleiðrétting treystir rekstrargrunn heimila og fyrirtækja og hraðar endurreisn.
- Samrýmist eignarréttarákvæðum stjórnarskrárinnar.
- Er áhrifaríkt og skjótvirkt úrræði sem ríkisstjórnin getur auðveldlega beitt.
- Gerir verðtryggingu óþarfa.
- Fjármálakerfið hreinsar út eitraðar og verðlausar platkrónur sem sitja eftir úr froðuhagkerfinu.
- Svart fé og því sem skotið hefur verið undan leitar upp á yfirborðið því enginn vill sitja uppi með gamlar úreltar og verðlausar krónur.
Hagsmunasamtök heimilanna taka ekki afstöðu til þess hvaða gjaldmiðill yrði fyrir valinu, það er pólitísk spurning sem stjórnvöld þurfa að svara. Sem dæmi mætti nefna nýja íslenska krónu, evru, Bandaríkjadal, kanadískan dal, norska krónu eða jafnvel nýja samnorræna krónu.
Meira um skiptigengisleið
Til þess m.a. að örlög þjóðarinnar í peningamálum verði frekar í hennar eigin höndum, er nauðsynlegt að skipta um gjaldmiðil og gera það með mismunandi gengi eftir því hvort um er að ræða t.d. laun og lágmarkssparnað eða aflandskrónur byggðar á falsverðmætum.
Aðgerðin ætti ekki að taka nema nokkra daga og myndi flýta endurreisn þjóðar um mörg ár.
Jafnhliða upptöku nýs gjaldmiðils verði gjaldeyrishöft afnumin og verðtrygging á neytendalán bönnuð og í framhaldi gerð krafa um ábyrga efnahagsstjórn. Þá yrði að búa þannig um hnútana að auðvelt væri fyrir þá lántakendur sem nú þegar eru með verðtryggð lán að greiða þau upp með nýjum lánum, eða breyta þeim í þá veru sem lagt er til með nýju lánakerfi, án uppgreiðslu eða stimpilgjalda.
Hugmyndin er ekki ný af nálinni og á sér fordæmi erlendis frá. Henni var til að mynda þrisvar hrint í framkvæmd í Þýskalandi á 20. öld, nú síðast við sameiningu Þýskalands. Þrátt fyrir að aðstæður hér á landi séu ekki alveg sambærilegar því sem þar var telja samtökin að þessi leið yrði vænleg til endurreisnar hagkerfisins.
Í sinni einföldustu mynd felst hugmyndin í því að eignir og skuldir eru færðar yfir í annan gjaldmiðil á mismunandi gengi. Sem dæmi mætti taka að smærri fjárhæðir, eins og laun og innistæður upp að ákveðnu marki færu yfir á genginu 1 á móti 1. Þannig yrðu 100 þúsund í gamla kerfinu jafngildi 100 þúsund í því nýja. Stærri skuldbindingar á borð við húsnæðislán færu yfir á öðru skiptigengi, til dæmis 1 á móti 0,6 - 0,7 (stuðullinn myndi miðast við uppsafnaða verðbólgu frá 2008 sem er nú um 34% frá 1. janúar 2008). Verðfærslur opinberra skráninga, s.s. fasteignaskrár á fasteignamati og brunabótamati verði skipt á genginu 1 á móti 0,6 - 0,7. 20 milljónir í gamla kerfinu yrði þannig að 14 milljónum í því nýja. Með þessu móti mætti leiðrétta fyrir það verðbólguskot sem varð vegna hrunsins og já, afnema verðtryggingu með skjótvirkri einskiptisaðgerð. Þess vegna telja Hagsmunasamtök heimilanna skiptigengisleiðina færa.
Einföld skýring á vandamálum hagkerfisins
Eitt af fórnarlömbum íslenskra viðskiptahátta í aðdraganda bankahrunsins er íslenska krónan. Með markaðsmisnotkun banka og lykilaðila íslensks viðskiptalífs á bæði hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði, með dyggri aðstoð peningaprentunaráhrifa almennrar verðtryggingar og peningastefnu Seðlabankans, var peningamagn í umferð margfaldað á árunum 2001 til 2008.
Ekki reyndist innistæða fyrir þessari aukningu og má segja að með þessu móti hafi þessir aðilar stundað peningafölsun og komist upp með það. Verðlausum pappírum var gefið verðgildi m.a. í svokölluðum endurhverfum viðskiptum" bankanna við Seðlabankann. Þannig gátu bankarnir og velvildarmenn þeirra, sem voru fyrst og fremst í eigendahópnum, í reynd skipt út platkrónum fyrir alvöru krónur.
Í dag sitja þessar alvöru" krónur á bókum seðlabankans og fjármagnseigenda í formi alfandskróna og skuldabréfa. Fjármagnseigendur bíða nú í röðum og vilja skipta þessum aflandskrónum yfir í gjaldeyri. Seðlabankinn hefur kynnt áætlun um losun gjaldeyrishafta, en helsta hindrunin á þeirri vegferð er hið mikla magn króna í umferð sem gert er ráð fyrir að eigendur vilji skipta yfir í gjaldeyri.
Seðlabankinn hefur því í áætlunum sínum kynnt tvær hugsanlegar leiðir til þess að losa um þá spennu sem hið mikla krónumagn veldur. Báðar byggja á því að beitt verði mismunandi gengi fyrir krónueignir fjármagnseigenda sem vilja losna úr helsi íslensku krónunnar. Annars vegar að gjaldeyrir verði seldur á uppboði og hins vegar að gjaldeyrisútflæði verði skattlagt þannig að raungengi liggi í reynd við aflandsgengi en ekki álandsgengi (opinbert skráningargengi Seðlabankans). Einungis uppboðsleiðin er komin til framkvæmda með því tilraunauppboði sem Seðlabankinn hefur þegar tilkynnt.
Ljóst er að leiðir Seðlabankans munu taka langan tíma, enda er nú gert ráð fyrir að gjaldeyrishöft verði viðvarandi a.m.k. til 2015. Aðferðarfræði Seðlabankans setur því þannig fjármagnseigendur í ökumannssætið varðandi tímalengd afnáms hafta. Stærsti gallinn við aðferðarfræði Seðlabankans er hins vegar sá að með henni verður ekki dregið úr peningamagni í umferð. Allt of margar krónur í umferð þýða að varanlega hefur dregið úr verðgildi gjaldmiðilsins og undirliggjandi verðbólguþrýstingur skapar hættu á annarri aðför að högum heimilanna þegar þessar krónur án undirliggjandi verðmætasköpunar komast í umferð eins og áætlun Seðlabankans gerir ráð fyrir. Þessu til viðbótar er gert ráð fyrir að lífeyrissjóðir landsmanna verði helstu kaupendur á þessum krónum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.7.2011 | 00:39
1521 læk vs. 51 kvitt
Illugi Jökulsson skrifar bloggfærslu um Sævar Ciesielski sem er nýlega fallinn frá. Í færslunni segir:
,,Eftir að Sævar losnaði úr fangelsi hóf hann, flestum á óvart, mikla baráttu fyrir því að mál hans og félaga yrðu endurupptekin. Hann stóð einn tugthúslimur, fyrrverandi smáglæpamaður, dæmdur morðingi, úthrópað illmenni! gegn gervöllu íslenska kerfinu sem ætlaði sko ekki að viðurkenna mistök! Með hjálp frá nokkrum góðum manneskjum tókst Sævar að koma endurupptökubeiðni fyrir Hæstarétt. Þá var orðið deginum ljósara að á Sævari og félögum höfðu verið framin skelfileg réttarmorð. Meira að segja Davíð Oddsson þáverandi forsætisráðherra viðurkenndi það í ræðustól á Alþingi. En enginn var samt til í að GERA neitt. Hæstiréttur hafnaði beiðni um endurupptöku. Það dugði ekki að sýna fram á að rannsókn málsins var rugl, meðferð þess hraksmánarleg og niðurstaðan augljós og svívirðileg skopstæling á réttlæti. Lesið bara málsskjölin."
Í þessum skrifuðum orðum hafa 1521 "lækað" færsluna.
Eva Hauksdóttir setur í gang undirskriftasöfnun til að skora á ráðherra að taka málið upp að nýju. Á síðu undirskriftasöfnunarinnar segir:
,,Hver sem kynnir sér gögn Guðmundar- og Geirfinnsmálanna hlýtur að sannfærast um að stór mistök hafi verið gerð, bæði við lögreglurannsóknir á þessum málum sem og fyrir dómstólum. Einn sakborninga, Sævar Ciesielski, hélt því fram til dauðadags að á honum hefði verið framið réttarmorð og barðist árangurslaust fyrir endurupptöku. Nú þegar Sævar er fallinn frá, sýnum við honum og öðrum sem þessi mál varða, samstöðu okkar með því að skora á Ögmund Jónasson, innanríkisráðherra að beita sér fyrir því að endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmála, sem og rannsókn á vinnubrögðum þeirra sem fóru með rannsókn málanna. Málsgögnin eru almenningi aðgengileg á netslóðinni http://www.mal214.com"
Í þessum skrifuðum orðum hafa 51 kvittað.
Ég verð númer 52...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)