21.5.2009 | 01:34
SAMSTÖÐUFUNDUR HAGSMUNASAMTAKA HEIMILANNA
Í ljósi þess neyðarástands sem ríkir á Íslandi boða Hagsmunasamtök heimilanna til samstöðufundar á Austurvelli laugardaginn 23.5.2009 kl. 15.00
Við teljum að þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa ákveðið að grípa til séu þvím miður hvergi nærri fullnægjandi. Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins munu 28.500 fjölskyldur á Íslandi (um 30%), skulda meira en þær eiga í árslok 2009. Árið 2007 var um að ræða 7.500
fjölskyldur. Þetta er 380% aukning.
Umrædd neikvæð eiginfjárstaða er fyrst og fremst til komin vegna höfuðstólshækkana gengis- og verðtryggðra lána. Lánin hafa rokið upp úr öllu valdi í kjölfar verðbólguskotsins sem orsakaðist af gengishruni krónunnar. Við höfnum því alfarið að almenningur verði látinn sæta ábyrgð á
efnahagshruninu með þessum hætti.
Hagsmunasamtök heimilanna vilja:
* Að gengis- og verðtryggð lán verði leiðrétt með almennum aðgerðum
* Að áhætta milli lánveitenda og lántakenda verði jöfnuð
* Afnema verðtryggingu
* Að veð takmarkist við þá eign sem sett er að veði
* Samfélagslega ábyrgð lánveitenda
Ræðumenn:
Bjarki Steingrímsson, varaformaður V.R.
Guðrún Dadda Ásmundardóttir, í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna
Ólafur Garðarsson, í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna
Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarstjórnarfulltrúi
Hljómsveitin EGÓ kemur fram
TÖKUM STÖÐU MEÐ HEIMILUNUM
www.heimilin.is
![]() |
Samstöðufundur á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hvers vegna fái þið Bubba á staðinn? Ég ber ekki lengur traust til þessara samtaka. Falleinkun.
Viðar Ingvason (IP-tala skráð) 21.5.2009 kl. 07:16
Glæsilegt framtak hjá ykkur. Meiriháttar. Gangi ykkur vel.
Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 21.5.2009 kl. 10:26
280% aukning ;)
ef eitthvað hækkar um 10% þá margfaldar maður með 1.1
ef eitthvað hækkar um 100% þá margfaldar maður með 2.0
ef eitthvað hækkar um 280% þá margfaldar maður með 3.8
En frábært framtak samt, get því miður ekki mætt (dýrt að fljúga til Íslands)
Björn Leví Gunnarsson, 21.5.2009 kl. 14:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.