21.5.2009 | 00:16
SAMSTÖÐUFUNDUR HAGSMUNASAMTAKA HEIMILANNA
Í ljósi þess neyðarástands sem ríkir á Íslandi boða Hagsmunasamtök heimilanna til samstöðufundar á Austurvelli laugardaginn 23.5.2009 kl. 15.00
Við teljum að þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa ákveðið að grípa til séu því miður hvergi nærri fullnægjandi. Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins munu 28.500 fjölskyldur á Íslandi (um 30%), skulda meira en þær eiga í árslok 2009. Árið 2007 var um að ræða 7.500 fjölskyldur. Þetta er 380% aukning.
Umrædd neikvæð eiginfjárstaða er fyrst og fremst til komin vegna höfuðstólshækkana gengis- og verðtryggðra lána. Lánin hafa rokið upp úr öllu valdi í kjölfar verðbólguskotsins sem orsakaðist af gengishruni krónunnar. Við höfnum því alfarið að almenningur verði látinn sæta ábyrgð á efnahagshruninu með þessum hætti.
Hagsmunasamtök heimilanna vilja:
* Að gengis- og verðtryggð lán verði leiðrétt með almennum aðgerðum
* Að áhætta milli lánveitenda og lántakenda verði jöfnuð
* Afnema verðtryggingu
* Að veð takmarkist við þá eign sem sett er að veði
* Samfélagslega ábyrgð lánveitenda
Ræðumenn:
Bjarki Steingrímsson, varaformaður V.R.
Guðrún Dadda Ásmundardóttir, í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna
Ólafur Garðarsson, í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna
Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarstjórnarfulltrúi
Hljómsveitin EGÓ kemur fram
TÖKUM STÖÐU MEÐ HEIMILUNUM
www.heimilin.is
Súperhetjur á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Gott hjá samtökunum mun mæta þarna
Jón Aðalsteinn Jónsson, 21.5.2009 kl. 00:33
Frábært framtak. Það er gríðarlega mikilvægt að við sýnum samstöðu núna því það er eins og Ríkisstjórnin ætli ekkert að taka á þessum málum. Ég munsvo sannarlega mæta og hvetja aðra til að taka þátt. Gangi ykkur vel og reynið að fá athygli fjölmiðla. Sjáumst
Helga Þórðardóttir, 21.5.2009 kl. 00:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.