Eitt ráðuneyti heimila og fjölskyldu

Það er ákveðið sjónarhorn að halda því fram að samfélagið sé samsett úr 4 stoðum.

- Opinberi geirinn
- Atvinnulífið
- Fjármagnið
- Heimilin

Allt spilar þetta saman og þarf sinn málsvara.  Allir þessir aðilar hafa sitt ráðuneyti og sumir fleiri en eitt.  Nema þá kannski sá síðast nefndi. 

Það eru fleiri málaflokkar sem eru á víð og dreif í kerfinu heldur en efnahagsmál.  Svo sem eins og mál sem snúa að fjölskyldum og heimilum, grunnstoð þjóðfélagsins.  Án þess hóps eru hinir óþarfir.

Því kalla ég eftir einu heimilis- og fjölskyldumálaráðuneyti.  Margt af því sem nú heyrir undir félags- og tryggingamálaráðuneyti ætti augljóslega heima þarna.  Eins allt sem snýr að neytendamálum og fjölskyldum sem notendum opinberrar þjónustu.  Aðalmarkmið slíks ráðuneyti ætti þó að sjálfsögðu að vera málsvari heimilanna í hvers kyns umræðu og að tryggja hagsmuni heimilanna í öllu laga- og regluverki.

Svona frásagnir skjóta rökum undir þörfina fyrir slíkt ráðuneyti.

Ég er annars því fylgjandi að ráðuneytum verði fækkað og hlutverk þeirra endurskilgreind.


mbl.is Eitt ráðuneyti efnahagsmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband