Grikkir allra landa sameinist! - Mótmæli til stuðnings Grikkjum verða þann 5. maí kl. 16:00 á Arnarhóli

Tilkynning á vef Attac samtakanna:

Stórfelldar launalækkarnir, uppsagnir opinberra starfsmanna, skerðing lífeyrisréttinda,  niðurskurður opinberra útgjalda og þyngri skattbyrgðar á hina lægst launuðu er meðal þess sem fyrirhugað er.  Afleiðingin er ógnvænleg lífskjaraskerðing almennings.

Á meðan grískir auðmenn koma eigum sínum í skjól, situr almenningur í súpunni. Engar tillögur hafa verið settar fram af  AGS eða ESB um hvernig hægt er að draga úr alvarlegri misskiptingu tekna og auðs. Engar tillögur hafa verið settar fram um að þeir sem ábyrgðina beri axli hana. Engar tillögur hafa verið settar fram um hvernig koma skal í veg fyrir að nýjar fjármálakreppur dynji á.

Þann 5. maí hefst allsherjarverkfall í Grikklandi. Á næstu dögum verða samstöðumótmæli um alla Evrópu. Krafan er: Segja verður skilið við pilsfaldakapítalisma og hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar. Stöðva verður þjóðnýtingu tapsins og einkavæðingu gróðans. Standa verður vörð um hagsmuni almennings en ekki fjárglæframanna.

Attac á Íslandi mun standa fyrir mótmælum til stuðnings Grikkjum þann 5. maí kl 16:00 á Arnarhóli.

Ræðumenn verða: Sólveig Jónsdóttir formaður Attac og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir þingkona VG.

Frekari upplýsingar verður að finna á Attac.is og á síðu Attac á Facebook.


mbl.is Grikkir leggja niður störf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ánægður með þig strákur. En hvað á að gera við íslenska auðmenn? Og hvar er verið að mótmæla þeirri lífskjaraskerðingu sem íslenskur almenningur er að verða fyrir þessi dægrin? Verður þjóðin borin út í haust?

Kv.

Valgeir Skagfjörð (IP-tala skráð) 4.5.2010 kl. 14:03

2 Smámynd: Tómas Waagfjörð

Þetta er nokkuð sem mun líklegast aldrei ske á Íslandi, við erum sem þjóð einfaldlega of miklar gungur til að standa upp fyrir sjálfum okkur.

Eftir stríð þá var allsherjarverkfall verkamanna á Íslandi, og lausn sem tveir flokkar vildu fara í stað þess að semja við verkalýðinn var að stofna her í þeim tilgangi að berja niður verkföll. Sem betur fer voru hinir tveir flokkarnir á móti því og þegar almenningur komst að þessu þá hótuðu þeir að slökkva á öllum frystigeymslum sem varð til þess að það var samið.

Tómas Waagfjörð, 4.5.2010 kl. 20:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband