Voru stjórnvöld aðvöruð í tæka tíð?

Birti í tilefni dagsins tölvupóst frá Gunnari Tómassyni til alþingismanna frá 12. september 2009:

 ,,Ágætu alþingismenn. 

Í Kastljósviðtali sl. þriðjudag 8. september vék ég m.a. að því broti lánastofnana á lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu sem felst í bindingu skuldbindinga í íslenzkum krónum við dagsgengi erlendra gjaldmiðla. 

Í viðtali á Bylgjunni sl. fimmtudag 10. september sagði viðskiptaráðherra í upphafi máls að “það hafi verið gengið út frá því til þessa að þessi erlendu lán hafi verið lögleg.” Ef einhverjir teldu að svo væri ekki, bætti hann við, þá væri það hlutverk dómstóla að skera úr um málið.

Hér er ekki um “erlend lán” að ræða.

Öll krónulán bankanna eru fjármögnuð af tiltækum krónueignum þeirra að meðtöldum innistæðum í Seðlabanka Íslands sem verða til við sölu bankanna til seðlabanka á erlendum gjaldeyri sem þeir hafa keypt af viðskiptavinum eða tekið að láni erlendis. 

Erlend lántaka felur í sér gengisáhættu, sem bankarnir hafa kosið að láta lántakendur axla með bindingu höfuðstóls krónulána við dagsgengi erlendra gjaldmiðla.

Lög nr. 38/2001 banna slíka yfirfærslu gengisáhættu, sbr. athugasemd við frumvarp til laga nr. 38/2001:“Samkvæmt 13. gr. og 1. mgr. 14. gr. frumvarpsins verður ekki heimilt að binda skuldbindingar í íslenskum krónum við dagsgengi erlendra gjaldmiðla.  Er talið rétt að taka af allan vafa þar að lútandi."

Í uppgjörssamningum skilanefnda og kröfuhafa gömlu bankanna er gengið út frá því að yfirfærsla gengisáhættu hafi verið lögleg.  Samningarnir taka því ekki mið af skaðabótaskyldu bankanna gagnvart lántakendum gengisbundinna lána skv. 18. gr. laga nr. 38/2001.

Niðurfærsla höfuðstóls slíkra lána til jafns við fyrri uppfærslu vegna gengisbindingar myndi nema hundruðum milljarða króna. Útfærsla uppgjörssamninganna án dómsúrskurðar um lögmæti gengisbindingar og hugsanlega skaðabótaskyldu væri glapræði.

Virðingarfyllst,

Gunnar Tómasson, hagfræðingur"


mbl.is Gengislánin dæmd óheimil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Billi bilaði

Gylfi hefur nýlega viðurkennt að kunna ekki vel á innviði alþingis. Hann virðist þó í þessu tilviki hafa verið fljótur að átta sig á hvernig stjórnmálamenn snúa sannleikanum upp á sjálfa sig.

Hefur Gunnar einhvers staðar sagt frá viðbrögðum við þessum tölvupósti?

Billi bilaði, 13.2.2010 kl. 01:11

2 identicon

Spurning:

Hefur Gunnar einhvers staðar sagt frá viðbrögðum við þessum tölvupósti?

Svar:

Það hefur ekki verið frá neinu að segja.

Gunnar Tómasson (IP-tala skráð) 13.2.2010 kl. 03:48

3 Smámynd: Billi bilaði

Takk fyrir, Gunnar. Þetta er athyglisvert.

Billi bilaði, 13.2.2010 kl. 09:36

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Mikið óskaplega er mikilvægt að mega sjá að úti í samfélaginu er að finna fólk sem stendur vakt fyrir okkur. Stjórnvöld eru svo óskaplega samtaka við að gleyma því fyrir hverja þau eru að vinna. Og svo eru þessi kvikindi nú reyndar á launum hjá okkur.

Árni Gunnarsson, 13.2.2010 kl. 12:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband