Steingrímur J. vill afnema verðtryggingu

Þann 16. febrúar 2009 sagði Steingrímur J. Sigfússon á borgarafundi að hann vildi afnema verðtryggingu.  Það væri gerlegt þegar búið væri að ná henni niður.  Um þetta má m.a. lesa hér.

Þegar þessi ummæli voru viðhöfð var ársverðbólga í kringum 18%.  Því ætti að spyrja Steingrím að því í dag hversu mikið verðbólgan þarf að fara niður til að hægt sé að afnema verðtrygginguna sem Gunnar Tómasson hagfræðingur hefur kallað ,,skálkaskjól stjórnvalda sem hafa hvorki haft vilja né getu til að stjórna peningamálum Íslands".

Vart þarf að minna lesendur á hversu víðtæk andstaðan er við verðtrygginuna en skv. könnunum sem eru um 80% landsmanna fylgjandi afnámi hennar.  Sjá kannanir Capacent í ágúst 2008 og september 2009.


mbl.is Verðbólgan mælist 6,6%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú verður að athuga að fyrir kosningar talaði Steingrímur 1 en eftir kosningar tók Steingrímur 2 við  Þeir virðast vera einn og sami maðurinn en eru það í raun ekki.

Eva Sól (IP-tala skráð) 26.1.2010 kl. 17:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband