Hreyfingin bætti málið

Frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave var samþykkt í dag. 

Sem betur fer náðu þingmenn Hreyfingarinnar fram mikilvægum breytingum á frumvarpinu sem snúa að hlutlausri miðlun upplýsinga um málið fyrir kosningu.  Hér má sjá umræður um þetta í þinginu í morgun:
http://www.althingi.is/altext/hlusta.php?raeda=rad20100108T104711&horfa=1

Í vor stendur svo til að setja lög um almennar þjóðaratkvæðagreiðslur. 

Vonandi ber þingið gæfu til að fylgja því fordæmi sem nú er komið fram varðandi rétt þjóðarinnar til að kalla fram þjóðaratkvæðagreiðslu en stjórnarfrumvarpið sem fyrir liggur gerir ekki ráð fyrir öðru en að meirihluti þingmanna geti fnáð fram á þjóðaratkvæðagreiðslu. 

Frumvarp Hreyfingarinnar gerir aftur móti ráð fyrir því að þjóðin geti sjálf haft eitthvað um málin að segja oftar en á 4 ára fresti, vilji hún það á annað borð.


mbl.is Lög um þjóðaratkvæði samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sjóveikur

hvenær fáum við að sjá "leyndarmálin" sem snúa að þessu máli ? það heirir eiginlega til að vita hvað sé verið að kjósa um !

Besta kveðja, Pálmar Magnússon Weldingh (sjoveikur)

Sjóveikur, 9.1.2010 kl. 06:40

2 identicon

Fyrst verður skýrslan rannsökuð af Alþingi og mikilvægustu atriðin tekin út og svo fáum við sauðsvartur almenningurinn að líta hana augum.

Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 9.1.2010 kl. 15:24

3 Smámynd: Þórður Björn Sigurðsson

Pálmar, ég veit ekki til þess að það standi til að aflétta trúnaði af þeim gögnum sem held að þú sért að vísa til og eru tilgreind á þessum lista:
http://www.island.is/media/eydublod/listi-yfir-trunadargogn-til-aflestrar.pdf

Hreyfingin hefur óskað eftir því að trúnaði verði aflétt en fengið neikvætt svar frá fjármálaráðherra.

Valgeir, ég held að þú sért að vísa til skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem er annað mál.  Þá skýrslu stendur til að birta almenningi um leið og þingmönnum.  Hins vegar verður það ábyrgð þingmannanefndar að móta viðbrögð Alþingis við skýrslunni, t.d. að draga ráðherra fyrir landsdóm ef ástæða þykir til.  Sitt sýnist hverjum um þá ráðstöfun.

Þórður Björn Sigurðsson, 9.1.2010 kl. 18:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband