SAMSTÖÐUFUNDUR HAGSMUNASAMTAKA HEIMILANNA

Í ljósi þess neyðarástands sem ríkir á Íslandi boða Hagsmunasamtök heimilanna til samstöðufundar á Austurvelli laugardaginn 23.5.2009 kl. 15.00

Við teljum að þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa ákveðið að grípa til séu því miður hvergi nærri fullnægjandi.  Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins munu 28.500 fjölskyldur á Íslandi (um 30%), skulda meira en þær eiga í árslok 2009.  Árið 2007 var um að ræða 7.500 fjölskyldur.  Þetta er 380% aukning.  

Umrædd neikvæð eiginfjárstaða er fyrst og fremst til komin vegna höfuðstólshækkana gengis- og verðtryggðra lána.  Lánin hafa rokið upp úr öllu valdi í kjölfar verðbólguskotsins sem orsakaðist af gengishruni krónunnar.  Við höfnum því alfarið að almenningur verði látinn sæta ábyrgð á efnahagshruninu með þessum hætti.  

Hagsmunasamtök heimilanna vilja:

* Að gengis- og verðtryggð lán verði leiðrétt með almennum aðgerðum
* Að áhætta milli lánveitenda og lántakenda verði jöfnuð
* Afnema verðtryggingu
* Að veð takmarkist við þá eign sem sett er að veði
* Samfélagslega ábyrgð lánveitenda

Ræðumenn:
Bjarki Steingrímsson, varaformaður V.R.
Guðrún Dadda Ásmundardóttir, í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna
Ólafur Garðarsson, í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna
Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarstjórnarfulltrúi

Hljómsveitin EGÓ kemur fram

TÖKUM STÖÐU MEÐ HEIMILUNUM
www.heimilin.is



mbl.is Súperhetjur á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Gott hjá samtökunum mun mæta þarna

Jón Aðalsteinn Jónsson, 21.5.2009 kl. 00:33

2 Smámynd: Helga Þórðardóttir

Frábært framtak. Það er gríðarlega mikilvægt að við sýnum samstöðu núna því það er eins og Ríkisstjórnin ætli ekkert að taka á þessum málum.  Ég munsvo sannarlega mæta og hvetja aðra til að taka þátt. Gangi ykkur vel og reynið að fá athygli fjölmiðla. Sjáumst

Helga Þórðardóttir, 21.5.2009 kl. 00:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband