Gagnsæi í meðferð þrotabúa

Ég man eftir því fyrr í vetur að náungi kom í Silfrið og talaði um mikilvægi þess að lágmarka tapið sem af þrotunum hlýst með því að gefa öllum jafnt færi á að bjóða í búin.

Man ekki hvaða fyrirtæki var þá verið að fjalla um en mér datt þetta í hug þegar ég frétti af því að Egill Árnason væri að fara aftur af stað. 

Tek fram að ég hef ekkert kynnt mér hvernig var staða að því máli og hef enga sérsaka ástæðu til að ætla að það hafi verið tortryggilegt.

Aftur á móti hefur lítið farið fyrir þessari umræðu síðan og ég velti fyrir mér hvers vegna.


mbl.is Fons í gjaldþrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frekar leiðinlegar fréttir enda miklir heiðursmenn sem reka Fons.  Það er dapurt að sjá hvert fyrirtækið á fætur öðru, samsteypur sem styrktu vel við íþrótta og menntalíf þjóðar.  Þessir menn koma eflaust sterkir tilbaka, það vita það allir sem þekkja viðskipti að það eru skin og skúrir í þessu.  Við þurfum á öllum okkar kjarkmiklu mönnum í þessu ástandi

Valur (IP-tala skráð) 1.5.2009 kl. 00:32

2 identicon

einmitt sömu heiðursmenn og fölsuðu bókhald flugfélagsins Sterling til að margfalda verðmætið en eignirnar ekki,vona innilega að þessir menn komi ekki sterkir til baka til að valda fleiri manns tjóni.

zappa (IP-tala skráð) 1.5.2009 kl. 01:20

3 identicon

Góður punktur...

Skiptastjóri er skipaður af hinu opinbera og hans hlutverk er að vernda hagsmuni kröfuhafa félagsins.  Maður spyr sig hvort þeir hagsmunir séu alltaf í fyrrirúmi, ég held reyndar að það sé lang oftast.  Alltaf má þó gera betur held ég...

Halldór R. Gíslason (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 19:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband