Stjórnvöld verða að þora að segja sannleikann

Getur verið að það sé í gangi markaður erlendis með krónur á miklu lægra gengi heldur en hér heima?  T.d. á 260 kr. / 1 EUR?

Og getur verið að þeir aðilar sem eignast eða eiga gjaldeyri og geta notað krónur á Íslandi selji sinn gjaldeyri erlendis og fái þar með mun fleiri krónur fyrir evruna heldur en ef þeir kæmu með evruna heim og skiptu henni hér?

Og að það sé ástæða þess að framboðið af gjaldeyri sé minni en eftirspurnin hér heima fyrir?

Getur verið að þetta tvöfalda gengi og haftastefnan sé að ganga af okkur dauðum?

Getur verið að það sé lang skynsamlegast að hleypa jöklabréfunum út og taka skellinn strax?

Getur verið að stjórnvöld séu að bíða þangað til eftir kosningar með að gera eitthvað í málunum?

Eða ráða þau kannski engu um þetta lengur?

Er það kannski AGS sem ræður för?

Ég bara spyr.


mbl.is Krónan veiktist um 0,95%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það væri fróðlegt að vita hvort þú vissir af einhverjum aðilum erlendis sem ættu krónur í reiðufé.  Ég held að þeir aðilar séu ekki margir.  Krónan er einfaldlega ekki til utanlands lengur, nema í seðlabönkum norðurlanda sem stunda ekki gjaldeyrisbrast við jón og gunnu frá íslandi sem birtast með 10 þúsund evrur í skjalatösku.

Friðrik (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 18:18

2 Smámynd: Púkinn

Eh... lestu það sem ég skrifaði hér http://frisk.blog.is/blog/pukablogg/entry/841465/  Þetta byggir ekki á krónum erlendis.

Púkinn, 30.3.2009 kl. 18:36

3 identicon

Þetta var allt miklu betra þegar Davíð og félagar stjórnuðu Seðlabankanum.  Þá styrktist krónan og styrktist.

Jóhann og potta- og pönnuliðið má hafa mikið á samviskunni!

Einn með gengislán (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 20:32

4 Smámynd: Púkinn

"Mikið betra?"

Seðlabankinn skapaði vandamálið til að byrja með, með því að halda gengi krónunnar allt, allt of sterku (sem gerði jöklabréfin álitleg), halda vöxtum uppi í algeru tilgangsleysi (því vaxtahækkanir til að slá á verðbólgu virka ekki ef aðgengi að erlendu lánsfé er auðvelt) og með því að láta undir höfuð leggjast að efla gjaldeyrisvarasjóðinn þegar krónan var sterk (sem hefði veikt krónuna)

Við súpum seyðið af þeirra afglöpum núna.

Gengi krónunnar er nálægt því að vera eðlilegt um þessar mundir.... það myndi falla óeðliolega ef gjaldeyrishöftum væri aflétt,en það er barnaskapur að halda að grundvöllur sé fyrir styrkingu krónunnar.

Púkinn, 30.3.2009 kl. 20:55

5 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Við áttum að losa okkur við óþolinmóða eigendur Jöklabréfa í nóvember á gengi yfir 300 kr evran.  Kr hefði síðan rétt við sér.  Við eru nú miðað við það gengi að borga Jöklabréfeigendum vexti upp á 35%.  Alveg ótrúlegt en satt

Andri Geir Arinbjarnarson, 30.3.2009 kl. 22:26

6 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Ég held ég verði að taka undir orð Friðriks. Mér þykir afar ólíklegt að erlendir bankar ákveði að taka þátt í fjármálabraski með að kaupa mikið magn evra af Íslendingum.

Hilmar Gunnlaugsson, 30.3.2009 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband