Tilvitnanir um verðtrygginguna

  • Jón Gunnar Hauksson ritstjóri Frjálsrar verslunar (des. 2008) ,,Hugsun mín er að ekkert
    væri eins mikilvægt en að lækka fjármagnskostnað skuldugra heimila og fyrir tækja í
    einum grænum til að þau eigi lífsvon”...,,Það eru ekki eðlilegir tímar í hagkerfinu”...,,
    afnema verðtrygginguna með því að festa vísitöluna í eitt ár til að losna við
    kúfinn og gjaldþrotin”.
  • Árni Páll Árnason alþingismaður (Mbl nóv. 2008)... ,,undanfarna mánuði og misseri
    hefur íslenskur almenningur fengið að kenna á því að fullu hversu ómöguleg verðtryggingin
    er í raun“.
  • Bjarni Bragi Jónsson fyrrverandi hagfræðingur seðlabanka (Mbl 7. des 2008)...,,hver
    einasti lánasamningur með lánskjaravísitölu stendur traustum fótum í stjórnarskrárvörðum
    eignarréttarákvæðum”.
  • Benedikt Sigurðsson framkvæmdastjóri Búseta á Akureyri (Mbl 7. des 2008)... ,,Meðan
    við búum við þetta óeðlilega viðskiptaumhverfi verðum við að frysta vísitöluna eins og
    skot”.
  • Jóhanna Sigurðardóttir ráðherra (Mbl 2. nóvember 1996) ,,Ísland er eina landið sem
    verðtryggir skuldir heimilanna. Efnahagsleg rök og sanngirni mæla með því að
    verðtrygging verði alfarið bönnuð”. 
  • Gylfi Magnússon ráðherra (Vísindavefur HÍ 2003) ,,Það er helst hægt að finna dæmi um að verðtrygging lána hafi verið bönnuð í löndum sem hafa átt í verulegum erfiðleikum í baráttu við verðbólgu".

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sólveig Þóra Jónsdóttir

Ég tel að það eigi að afnema verrðtryggingu lána á Islandi. Er verðtrygging lána til staðar í öðrum þróuðum löndum.?

Sólveig Þóra Jónsdóttir, 28.2.2009 kl. 02:01

2 Smámynd: Þórður Björn Sigurðsson

,,Bara í Ísrael, Brasilíu og Chile og Ísland
Þetta verðtryggingarfyrirkomulag á íbúðarhúsnæði þekkist ekki í löndum Evrópu, en hefur verið notað í Ísrael, Brasilíu og Chile."

Úr grein Einars Árnasonar, hagfræðings BSRB, sem ég birti hér á blogginu.

Þórður Björn Sigurðsson, 28.2.2009 kl. 10:02

3 identicon

Er með eina nýrri frá Jóhönnu Sigurðardóttur (1. september 2004)

"Óréttlætið í verðtryggingunni - Með verðtryggingu er verulegum hluta áhættu vegna veðskulda og lánasamninga komið yfir á skuldara. Sömuleiðis kemur misvægi í þróun launa og verðlags illa við fjárhag skuldara, skekkir allar fjárhagsáætlanir heimilanna og hækkar oft verulega með sjálfvirkum hætti höfuðstól lána. Þekkt er líka að ýmsir þættir sem við höfum engin áhrif á eins og verðhækkanir erlendis, get keyrt upp vísitöluna. Verðtrygging er einnig oft tortryggileg í augum erlendra fjárfesta og getur því torveldað og jafnvel komið í veg fyrir fjárfestingar erlendra aðila hér á landi."

http://www.althingi.is/johanna/pistlar/safn/001334.shtml

 

Helena (IP-tala skráð) 12.3.2009 kl. 00:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband