Útlit fyrir að Alþingi muni lögleiða glæpinn

Frumvarpið gerir ráð fyrir því að gengistrygging verði lögleidd (í tilfelli fyrirtækja) og að lagalegum stoðum verði skotið undir tilmæli FME og Seðlabankans. Hér höfum við dæmi um að stjórnvöld hafi skotið fyrst og ætli nú að spyrja. Jafnframt hika stjórnvöld ekki við að leggja fram afturvirk lög á neytendur en það virðist ekki vera hægt gagnvart lánveitendum.



mbl.is Gengislánafrumvarp lagt fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Núverandi ríkisstjórn á erfitt með að fara eftir og samþykkja gildandi lög, hvort heldur er landslög eða stjórnarskrá.

Því notar hún þá aðferð að breyta þeim lögum sem henni er illa við og vill fá breytingu á stjórnarskrá.

Stjórnin hefur tekið stöðu með lánastofnunum og því liggur beinast við, þegar þær hafa verið dæmdar sekar, að breyta lögum þeim til hagsbóta.

Gunnar Heiðarsson, 12.11.2010 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband